top of page

Aðskilnaðarþjálfun hunda - Fyrir hunda sem eiga erfitt með að vera einir heima

Á hundurinn þinn erfitt með að vera einn heima? Geltir hann, vælir, eyðileggur hluti eða sýnir merki um streitu þegar þú ferð út?


Þá gæti verið um að ræða aðskilnaðarkvíða eða aðskilnaðartengdan vanda. Sem betur fer er hægt að hjálpa flestum hundum með markvissri aðskilnaðarþjálfun.


Hvað er aðskilnaðarkvíði hjá hundum?

Aðskilnaðarkvíði er tilfinningaleg vanlíðan sem kemur fram þegar hundur er skilinn eftir einn eða frá þeim einstaklingi sem hann tengist sterkast. Hundurinn upplifir ekki aðeins leiða heldur raunverulega streitu eða óöryggi.


Algeng einkenni eru:

  • Gelt, væl eða spangól þegar manneskjan hans fer út úr húsi eða jafnvel í annað herbergi

  • Klór eða nag í hurðir, glugga, sófa eða annað dót

  • Eyðilegging á húsgögnum eða öðrum hlutum

  • Mikil mæði, slef, geisp, sleikja út um

  • Hundurinn fylgir eiganda stöðugt um heimilið

  • Erfiðleikar með að slaka á þegar eigandi undirbýr brottför


Það er mikilvægt að átta sig á því að hundurinn er ekki að „vera óþekkur“ heldur að bregðast við streitu sem hann ræður ekki við einn.



Af hverju þróa sumir hundar með sér aðskilnaðarkvíða?


Margar ástæður geta legið að baki m.a:

  • Breytingar á heimilishaldi eða daglegri rútínu

  • Flutningar eða stórir atburðir í lífi hundsins

  • Nýtt heimili

  • Langt tímabil þar sem eigandi var mikið heima

  • Erfðir skipa stóran sess í þróun aðskilnaðarkvíða


Allir hundar geta þróað með sér aðskilnaðarvanda, óháð aldri eða tegund.


Hvernig virkar aðskilnaðarþjálfun?

Aðskilnaðarþjálfun byggir á því að kenna hundinum smám saman að vera rólegur og öruggur þegar eigandi er ekki til staðar.


Þjálfunin felur í sér:

  1. Mat á núverandi stöðu hundsins

  2. Skref-fyrir-skref æfingar þar sem hundurinn er skilinn eftir í mjög stuttan tíma og lengt þegar hann ræður við það

  3. Kerfisbundna uppbyggingu á þeim tíma sem hundurinn getur verið einn án streitu

  4. Skráningu á framförum og aðlögun þjálfunaráætlunar eftir þörfum

  5. Önnur atriði æfð meðfram aðskilnaðarþjálfun sem spila inn í, meðal annars triggerar, að starta bíl og geta keyrt í burtu ofl.


Mikilvægt er að vinna á hraða sem hundurinn ræður við. Ef farið er of hratt getur það aukið vandann í stað þess að leysa hann.

Aðskilnaðarþjálfun. Á að vera á þann máta að hundurinn bregðist ekki við. Þar sem notast er við sannreyndar aðferðir afnæmingar hjá aðskilnaðarþjálfara

Algeng mistök í aðskilnaðarþjálfun


Algeng mistök hjá fólki og mýtur sem ber sterklega að varast:

  • Leyfa hundinum að „venjast því“ að vera einn. T.d með því að láta hann ''gelta'' það úr sér.

  • Skamma hundinn fyrir gelt eða eyðileggingu.

  • Skilja hundinn eftir lengur en hann ræður við.


Þessar aðferðir virka sjaldnast og geta í sumum tilfellum aukið kvíða hundsins.

Árangursrík aðskilnaðarþjálfun byggir frekar á jákvæðri hegðunarmótun og kerfisbundnum æfingum sem taka mið af líðan hundsins.


Hversu langan tíma tekur að vinna á aðskilnaðarkvíða?

Tímalengdin er mismunandi eftir hundum. Sumir sýna miklar framfarir á nokkrum vikum á meðan aðrir þurfa nokkra mánuði af markvissri þjálfun. Það fer eftir eðli vanlíðanar hundsins, hvort um sé að ræða aðskilnaðarvanda, kvíða eða ekki upplifað aðskilnað skipulega áður.


Mikilvægast er að vinna samkvæmt skýru plani og fylgjast með framförum hundsins.


Fagleg aðstoð við aðskilnaðarþjálfun

Ef hundurinn þinn á erfitt með að vera einn heima getur fagleg ráðgjöf flýtt fyrir framförum og hjálpað þér að forðast algeng mistök.

Með einstaklingsmiðaðri aðskilnaðarþjálfun er hægt að byggja upp öryggi hundsins skref fyrir skref og skapa rólegra og ánægjulegra heimilislíf fyrir bæði hund og eiganda.


Þarftu aðstoð?

Ef þú vilt fá mat á stöðu hundsins þíns eða sérsniðna aðskilnaðarþjálfun geturðu haft samband og fengið ráðgjöf sem byggir á nýjustu þekkingu á aðskilnaðarkvíða hjá hundum og jákvæðum þjálfunaraðferðum.

Aðskilnaðarþjálfun. Sérhæfður aðskilnaðarþjálfari fer með þér í gegnum bataferlið

 
 
 

Comments


bottom of page